Sankti-Ice

Sagan
Ræktunin okkar er lítil en við erum búin að vera með St.bernards hunda á
heimilinu síðan árið 1997.
Við búum í Mosfellsbænum með hundana okkar, sem eru hluti af fjölskyldunni
og hrærast með okkur allan daginn.
Okkar fyrsti St.bernards hundur hét ISCH Kubbur og var hann undan
innfluttum hundum frá Noregi . Kubbur var með góðar línur á bak við sig og
erum við óskaplega heppinn að hafa getað byrjað ræktunina okkar með honum,
en foreldrar hans voru bæði frá Britt Marit Halvorsen, Bernegarden´s kennel
í Noregi.
Við komumst svo í samband við Britt Antillu, í kennel Ademiva sem lét okkur
hafa Ademiva Ikaria Melita árið 1999 og kom hún til landsins árið 2000.
Melita var nákvæmlega það sem við vorum að leita að, góð og falleg. Henni
Britt Antillu eigum við miklar þakkir til, enda búin að vera ómæld aðstoðin
frá henni í gegnum árin.
Fyrsta gotið okkar leit dagsins ljós þann 1. maí 2002, en úr því goti héldum
við eftir tveimur hundum, rakka og tík,
ISCH
Sankti-Ice Anakin Cujo og
INT UCH
ISCH Sankti-Ice Anna Karenina. Við, Cujo og Karenina erum búin
að skemmta okkur vel saman í sýningarhringnum á síðustu árum og mun það
ævintýri renna mér seint úr minni. Cujo okkar er sigursælasti St.bernards
sem hefur nokkur tímann verið uppi á Íslandi . Við getum ekki annað en verið
afskaplega stolt.
Ári síðar bættist svo í Sankti-Ice fjölskylduna, en þá leit dagsins ljós
okkar annað got. Í því goti héldum við eftir INTCH ISCH Sankti-Ice Benitu.
Við erum mjög stolt af öllum okkar hvolpum og eigendum þeirra, við erum mjög
heppin.
Árið 2002 fengum við
ISCH Dein
Hards Wellington frá Dein Hards kennel í Svíþjóð, var hann
sérstaklega valinn gagngert fyrir okkar hunda og línur. Því miður náðum við
aldrei að rækta undan Wellington, en hann lést skyndilega árið 2006 og var
það mikill missir fyrir okkur, sem og stofninn. Þökkum Karin Brevik fyrir
allan stuðninginn og alla hjálpina og Britt Antilla fyrir að finna
Wellington með okkur á sínum tíma.
Árið 2004 kom
ISCH NUCH
NW-02 Numebansens Good Golly Miss Molly til lansdins , hún er
fyrsti snögghærði hundurinn sem stígur fæti á land í langan tíma, en fyrir
hefur ein tík komið en það var einmitt mamma hans Kubbs míns.
Árið 2006 eignuðumst við INTCH ISCH ISW-08
Bernegardens Price Of thieves ( Kevin ) og INTCH ISCH
Fairhope
Van´t Hof ter Quinni ( Hófí ) , en þau koma frá sama ræktanda
Britt Marit Halvorsen, sem bæði eru í Noregi og Belgiu með sína ræktun.
Britt Marit er afskaplega virtur ræktandi og eru það forréttindi að geta
verið í sambandi við hana. Hófí fengum þegar við misstum
Elegance
Van‘t Hof Ter Quinni . Elegance kom til okkar snemma árs 2006 og
yfirgaf okkur ung að aldri sama ár. Elegance var eitthvað meira en bara
hvolpur fyrir mér.
Kevin og Hófí eru með mjög eftirsóttar blóðlínur og mætti segja að við “óðum
eld og brennistein“ til að fá þau í okkar hendur.
Þegar farið var út að skoða Kevin og Hófí í lok árs 2006, þá fékk ég í
fangið þennan rosalega fallega og fagnandi hund, ISW-07 ISCH
NUCH SUCH
Tinarnera Atlas. Það var ekki aftur snúið, farið var í það að
leggjast í línur og heilbrigði og loks þegar samningar náðust og Atlas var
orðinn okkar kom hann heim með Kevin og Hófí til Íslands í lok sama árs.
Atlas var mjög mikilvægur hundur fyrir okkar stofn, hann hefur ekki bara
gefið meistara hvolpa og afabörn heldur líka heilbrigða og fallega hunda.
Atlas gaf okkur það sem við vildum og þurftum , Atlas var frábær hundur .
Sama ár og Atlas, Kevin og Hófí komu úr einangrun var Atlas í lok árs 2007
heiðraður Stigahæsti hundur ársins 2007 ( allar tegundir )
Sá merki atburður endurtók sig aftur árinu síðar þegar Kevin, sem þá var
sýndur í fyrsta skipti í opnum flokk hreppti líka titillinn Sigursælasti
hundur ársins 2008 ( allar tegundir ) Það er engin hundur eins og Kevin.
Hann hefur ótrúlega góða skapgerð og þegar fólk hefur séð hann einu sinni í
hringnum þá gleymir það honum aldrei !
Þarna má svo sannarlega segja að St.bernhards hundurinn hafi brotið sögulegt
blað. Við höfðum valið réttu leiðina og fengið réttu hundana á rétta
tímanum.
Á því skemmtilega ári 2008 þegar bankar og annað hrundi á Íslandi kom ISCH
Bernegarden´s Xalinka ( Paris) í okkar hendur. Gjaldeyrishöft og aðrar
hindranir gerðu það að verkum að oft munaði ekki miklu að hætt yrði við að
ná í Paris. Allt hófst þetta á endanum og er hún allra hindrana virði. Paris
er undan frábærum amerískum meistara og verður gaman að sjá hvað hennar
línur munu gera fyrir ræktunina okkar.
ISCH Sankti-Ice Dancing Star Elita ( Nóra ) er eina fædda dóttir ISW-07 ISCH
NUCH
SUCH Tinarnera Atlasar og INTCH ISCH Sankti-Ice Benitu. Nóra er þriðja
kynslóð Sankti-Ice og horfi ég stolt á þessa tík sem ræktandi hennar, mömmu
hennar og ömmu og afa uppalandi ! Strax í upphafi var ákveðið að hún mundi
búa áfram í foreldra húsum og taka þátt í ævintýrinu með okkur.
Sankti-Ice Forever Perfect ( Orlando) fæddist árið 2009 og kemur úr 9 hvolpa
goti , sem saman stendur af fallegum og yndislegum hundum. Hann er sonur
INTCH ISCH ISW-08
Bernegardens Price Of thieves ( Kevin ) og INTCH ISCH
Fairhope
Van´t Hof ter Quinni ( Hófí ). Orlando er má segja mín uppskera
af skemmtilegu ferðunum mínum út til Noregs , kynni við fullt af fróðlegu
fólki og ávöxturinn minn þegar ég keypti pabba hans Kevins og mömmu hans
Hófí. Gaman verður að fylgast með Orlando dafna í framtíðinni !
Í gegnum tíðina höfum við fengið ómælda hjálp frá góðu fólki, ræktanda ,
fjölskyldu og vinum. Enn og aftur fengum við nákvæmlega það sem við vildum.
Góða , Heilbrigða og fallega hunda.
Hundarnir eru okkar áhugamál og lífstíll og fer allur okkar frítími að hugsa
um þá og er sá tími okkur mikið gleðiefni.
St.bernards er búinn að fylgja mér síðan ég var ung að aldri og mætti mest
halda að áhuginn fyrir þeim væri meðfæddur.
Í framtíðinni er draumur okkar að rækta áfram heilbrigða og góða hunda, og
að sjálfsögðu fyrst og fremst frábæra félaga og fjölskylduhunda.

|